6.-og7.flokkur karla

Tindastóll

28.09.2010 14:21:39 / 67flkk

Uppskeruhátíð!

Uppskeruhátíðin ykkar verður föstudaginn 1.október í íþróttahúsinu milli 17:00 og 18:30.
Látið sjá ykkur ;),
kv, Árni 

» 0 hafa sagt sína skoðun

24.08.2010 16:57:43 / 67flkk

Framhald!

Þá er sumarið að klárast og þið að byrja í skólanum strákar!
Því miður fengum við þær fréttir frá Borgarnesi að það hefðu engar myndir verið teknar af mótinu :( Skýringarnar sem við fengum voru þær að ljósmyndarinn hafi verið veikur.. 

En aðeins um framhaldið:
um mánaðarmótin sept/okt hefst vetrarstarfið og þá færast strákarnir upp um flokk (eldra ár í hvorum flokki fer upp um flokk). 
7. flokkur er kominn í frí fram að vetrarstarfi
6. flokkur yngra ár (fæddir 2001) eru komnir í frí fram að vetrarstarfi
6. flokkur eldra ár (fæddir 2000) mega  mæta á æfingar með 5. flokki næstu 3 vikurnar. Gaui þjálfar 5.flokkinn sem æfir á mánudögum og miðvikudögum kl. 15:00.

Annars viljum við þjálfararnir þakka ykkur kærlega fyrir sumarið, þið mættuð vel og lögðuð ykkur fram! Nú verðið þið bara að halda áfram að æfa vel í vetur og vera duglegir að æfa ykkur aukalega þá verðiði ennþá betri næsta sumar! Takk fyrir sumarið strákar!:klikk:ÁFRAM TINDASTÓL:klikk:
kveðja,
Árni, Simmi, Konni og Rakel Svala :d 

» 0 hafa sagt sína skoðun

20.08.2010 17:29:49 / 67flkk

Breytingar á liðunum!

vegna forfalla urðum við því miður að gera nokkrar breytingar á liðunum í 6.flokki
A-lið:
Óðinn - Hólmar Sindri - Ísak Dagur - Gunnar Valur - Hjörtur - Ingi - Jóhann Daði - Hrannar Már

B-lið:
Víkingur - Skírnir - Haukur Steinn - Gunnar - Ari - Eysteinn - Jón Arnar - Ragnar

C-lið:
Bergsteinn - Aron Ingi - Alexander - Pálmi - Kristófer Örn - Hákon Ingi - Andri Snær - Kristófer Dagur

Áfram Tindastóll
Þjálfarar

» 0 hafa sagt sína skoðun

19.08.2010 16:49:31 / 67flkk

Skallagrímsmót 6. og 7. flokkur! og aðeins um framhaldið

Þátttökugjald er 2500 kr. Innifalið í gjaldinu er CD diskur fyrir hvert lið með liðsmynd og myndum úr leikjum á mótinu, grillveisla í lok móts, samloka, ávöxtur og safi yfir miðjan daginn. Allir iðkendur fá þátttökuviðurkenningu auk þess sem prúðasta liðið verður valið í hverjum flokki. 


Diskurinn með myndunum frá mótinu verður hjá þjálfara og þeir foreldrar sem hefðu áhuga á að fá sendar myndir frá mótinu geta sett email-ið sitt hér í comment. Við sendum þær svo á ykkur eftir helgi.
Þátttökugjaldið greiðist þjálfurum á staðnum!

Einhverjir foreldrar ætla fylgja strákunum suður og einhverjir verða fyrir sunnan um helgina og flestir virðast hafa far. Ef það eru einhverjir sem hafa ekki far, þá geta þeir haft samband við foreldra hinna strákanna sem þeir eru með í liði. Eins þeir sem geta tekið farþega að láta vita.

6. flokkur
Leikjadagskrá fyrir Skallagrímsmótið á Laugardaginn hjá 6. flokki er kominn. Hana má finna hér: http://www.skallagrimur.is/knattspyrna/nr/105997/

Tóta (Óðinn Smári) hefur laust fyrir 2 farþega + einn fullorðinn. 
Rafn Ingi 8626244 (Hákon Ingi) hefur laust fyrir 1-2.

Í næstu viku fer skólinn í gang og æfingarmálin breytast. Eldra ár í 6 flokki (fæddir 2000) mega mæta á æfingu hjá 5.flokki, en yngra árið (fæddir 2001) fara í frí þangað til vetraræfingarnar byrja um mánaðarmótin september október.
5. flokkur æfir næstu 3 vikurnar á mánudögum og fimmtudögum kl 15:00. hægt er að fylgjast betur með því á síðu 5.flokks: http://5flkk.blogcentral.is/ 

A-lið
Óðinn Smári - Hólmar Sindri - Ísak Dagur - Ragnar - Gunnar Valur - Hjörtur Ragnar - Ingi Sigþór - Jóhann Daði - Hrannar Már

6 Leikir
kl. - lið - (völlur)
10:20 - Skallagrímur - (1)
11:00 - HK2 - (1)
11:40 - HK1 - (1)
13:00 - ÍR - (1)
15:20 - Grindavík - (1)
16:20 - ÍA - (1)

MÆTING 9:50 Í BORGARNES!

B-lið
Víkingur Ævar - Skírnir Már - Haukur Steinn - Gunnar Þorleifs - Kristófer Dagur - Ari - Eysteinn Ívar - Andri Snær - Jón Arnar

6 Leikir
kl. - lið - (völlur)
10:00 - ÍA - (2)
10:40 - ÍR - (4)
13:00 - Grindavík - (2)
13:40 - HK3 - (2)
14:40 - Skallagrímur - (2)
16:00 - ÍR3 - (2)

MÆTING 9:30 Í BORGARNES

C-lið
Bergsteinn - Aron Ingi - Alexander - Gísli - Pálmi - Jón Gísli - Kristófer Örn - Auðunn Elí - Hákon Ingi.

6 Leikir
kl. - lið - (völlur)
11:00 - ÍA - (4)
11:40 - Kjalarnes - (4)
12:20 - HK4 - (4)
13:20 - ÍR4 - (4)
14:40 - Þróttur Vogum - (4)
Síðasti leikur hjá C-liðinu verður umspilsleikur um sæti. Hann verður einhverntímann á milli 15:20 - 16:00 á velli 3 eða 4.

MÆTING 10:30 Í BORGARNES

7.flokkur

Gunnþór vantar far!

Eftir helgina er 7. flokkurinn svo kominn í frí þangað til að vetraræfingarnar fara af stað um mánaðarmótin september október.
7.flokkur er skráður í b-lið

7.B
Alex Bjartur - Jón Gísli - Kristófer Örn - Ólafur Þór - Bogi - Gunnar Steinn - Valgarður - Þórður Ari - Örvar Freyr - Hákon Ingi - Birkir - Gunnþór - Helgi Hrannar - Ingimar

5 Leikir 
kl. - lið - (völlur)
10:20 - ÍA - (3)
11:20 - Fjölnir4 - (1)
13:00 - KR3 - (3)
14:00 - Stjarnan3 - (2)
15:30-16:30 er umspilsleikur um sæti á velli 4 eða 2.

þjálfarar á laugardag verða Simmi og Konni og á Sunnudag verður Konni. Áfram Tindastóll!
Kveðja Árni og Simmi

ATH. ca. klukkutíma aukaæfing á morgun, föstudag, kl. 13:00. Allir sem geta mæta!

» 9 hafa sagt sína skoðun

16.08.2010 15:41:41 / 67flkk

Skallagrímsmótið

Núna fer að styttast í síðasta mót sumarsins:)

Núna á laugardaginn keppir 6.flokkur og það eru komin 3 lið í 6.flokkinn og koma liðin inn á síðuna fljótlega, það verða mjög svipuð lið og voru á króksmótinu en samt með einhverjum smá breytingum:)
7.flokkurinn hins vegar verður bara með eitt lið miðað við skráningu sem ég var kominn með þegar ég þurfti að segja hversu mörg lið við værum með, þannig að ef það eru 13 eða 14 strákar þá verða bara þeir allir í sama liðinu. Liðið kemur inn á síðuna fljótlega eins og hjá 6.flokknum.

Bílamál er eitthvað sem við þjálfarar verðum að fá að vita og að væri fínt ef þeir foreldrar sem eru að fara á Borgarnes geti látið vita hérna inn á síðunni eða látið Árna(660-4672) vita og einnig hvort þau gætu tekið einhverja farþega ef einhverjum skyldi vanta far.

Annars er það bara að gíra sig inn í mótið og klára sumarið með stæl:)

Þjálfarar á laugardeginum verða Simmi og Konni en á sunnudeginum verður Árni með 7.flokkinn.

Kveðja Simmi


» 10 hafa sagt sína skoðun

26.07.2010 11:34:59 / 67flkk

Blönduósferð (6.flokkur)

Núna erum við að fara til Blönduósar að skemmta okkur aðeins en það verður farið með 6.flokkinn og það verður spilað við Hvöt og jafnvel Kormák ef þeir komast. Það verður spilað í okkar liðum og einnig verður kannski blandað eitthvað liðunum svona til að jafna þetta eitthvað ef þetta verður eitthvað ósanngjarnt.

Þessi dagur verður annað hvort á morgun (þriðjudag) eða miðvikudaginn, ef þetta verður á miðvikudaginn byrjar þetta klukkan 14:30 á Blönduósi, þetta mun taka svona einn og hálfan tíma. Ef þetta verður á morgun þá kemur það í ljós í dag klukkan hvað það verður.
Árni fer með strákana þannig að ef það er eitthverjar aðrar upplýsingar sem ykkur vantar þá getið þið haft samband við Árna.(868-5691)

Það er litið á þennan dag sem skemmtidag þannig að um að gera að taka með sér sundföt til að geta farið í sund eftir allt saman í nýju glæsilegu sundlauginni þeirra blönduósinga og einnig að taka með sér góða skapið:)

Kveðja Simmi og Árni:)

» 6 hafa sagt sína skoðun

22.07.2010 15:00:16 / 67flkk

SUMARFRÍ!!!!

Kæru foreldrar

Dagana 28.júlí til 2.ágúst verður frí á æfingum hjá krökkunum. Æfingar hefjast því aftur Þriðjudaginn 3.ágúst. Þann dag verður 5.flokkur bæði karla og kvenna í knattþrautum á vegum KSÍ á aðalvelli Tindastóls. En 6. og 7. Flokkur sem og boltaskólinn verður á æfingasvæðinu upp á nöfum. Þar verða svo allar æfingar yngri flokkana restina af þeirri viku sem og vikuna eftir Króksmót. Þetta er gert til að leyfa æfingasvæðinu við íþróttahúsið að jafna sig fyrir og eftir mót.

Ég vil einnig vekja athygli á eftirfarandi.  Um þessar mundir eru foreldraráðin byrjuð að hringja út til ykkar vegna vinnu við króksmót. Eins og í fyrra geta foreldrar unnið mótsgjald barnsins síns af sér með því að taka vaktir við mótið. Mótsgjaldið í ár er 7000.kr.

Kær kveðja:

Gaui, Simmi og Árni.  


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.07.2010 21:46:51 / 67flkk

KRÓKSMÓT :)

Núna fer að styttast í króksmótið og það væri glæsilegt að fá á hreint hverjir verða með:) Látið vita hérna á síðunni eða á æfingu hvort þið verðið með eða ekki.

Það væri frábært að ná 3 liðum í 6.flokknum og jafnvel 3 liðum í 7.flokknum líka (með 8.flokknum) þannig að um að gera að vera með;)

Kveðja Simmi þjálfari

» 34 hafa sagt sína skoðun

12.07.2010 15:22:36 / 67flkk

Skallagrímsmótið!!!!!

Núna er kominn tími á að láta vita hverjir geta farið á mótið.

Þessi mót eru 21.ágúst fyrir 6.flokk en 22.ágúst fyrir 7.flokk.

Það væri fínt ef þið gætuð látið vita hvort þið komist eða ekki á mótið annað hvort hérna á síðunni eða á æfingu:)

Kveðja Simmi

» 18 hafa sagt sína skoðun

07.07.2010 13:29:43 / 67flkk

foreldrafundur (7.flokkur)

Núna á fimmtudaginn 8.júlí verður haldinn foreldrafundur fyrir 7.flokk karla í vallarhúsinu klukkan 20:30.

Það er mikilvægt að sem flestir mæti því við erum að fara að ákveða hvort verður farið til Dalvíkur sem verður 17.júlí eða hvort við förum til Borganesar sem verður 22.ágúst.

Kveðja Simmi

» 3 hafa sagt sína skoðun

29.06.2010 09:14:10 / 67flkk

KS/Leiftur kemur í heimsókn (7.flokkur)

Núna á fimmtudaginn er Hnátumót KSÍ fyrir 6.flokk kvenna og þjálfarinn hjá KS/Leiftri vildi koma með 7.flokk líka til að spila aðeins við okkar 7.flokk, þannig að á fimmtudaginn stefnum við að því að spila við 7.flokk KS/Leiftur fyrir Hnátumótið.

Við látum vita betur um þetta á morgun því þá verður þetta komið á hreint. Ef það verður af þessu þá verður þetta á æfingatímanum klukka 13:00 og stendur yfir í klukkutíma.

Kveðja Simmi

» 0 hafa sagt sína skoðun

28.06.2010 17:42:13 / 67flkk

Mótamál hjá 7.flokk karla!!!!

Núna er komið að því að ákveða hvaða mót verður farið á hjá strákunum.

Það sem stendur til boða er að fara til Dalvíkur 17.júlí eða til Borganesar 22.ágúst.
Þess má geta að 17.júlí er Símamót hjá öllum stelpunum þannig að það eru einhverjir sem myndu ekki komast til Dalvíkur því þeir eru með börn í báðum flokkum.

Annað hvort í þessari viku eða byrjun næstu viku þá mun verða foreldrafundur og þá verður endanlega tekin ákvörðun um hvort mótið verður farið á, þannig að fylgjist með á síðunni eða hvort strákarnir komi með miða heim um hvenær fundurinn verður.

Kveðja Simmi

» 0 hafa sagt sína skoðun

23.06.2010 09:46:18 / 67flkk

Siglufjarðarferð:)

20 strákar úr 6.flokki karla fóru til Siglufjarðar til að taka þátt í Pollamóti KSÍ sem er Íslandsmót fyrir 6.flokk. Það má segja að þessi ferð hafi verið mjög góð því bæði lið stóðu sig vel og mega vel við una.
A-liðið spilaði 4 leiki og vann 2 en tapaði 2. Þannig var það að þeir byrjuðu að spila við Þór og sá leikur endaði með sigri okkar manna í miklum baráttu leik 2-1 þar sem Jóhann Daði skoraði úr víti og Hólmar Sindri skoraði frá miðju:) Annar leikurinn var á móti KS/Leiftri en sá leikur tapaðist 5-2 eftir að strákarnir hafi komist tvisvar yfir en þeir náðu ekki að fylgja því eftir, Jóhann Daði skoraði eitt mark en ég man ekki hver skoraði hitt markið. Þriðji leikurinn var á móti KA og tapaðist sá leikur 2-1 og var sá leikur mjög jafn og fengu okkar menn alveg aragrúa af færum sem ekki nýttust en það var Ingi sem skoraði þetta eina mark okkar í leiknum. Síðasti leikurinn var síðan á móti Magna frá Grenivík og vannst hann 4-1 þar sem Jóhann Daði skoraði 3 og Óðinn 1. Þannig að A-liðið stóð sig mjög vel og með smá heppni þá hefði þetta getað endað öðruvísi.

B-liðið spilaði 3 leiki og unnust 2 en einn tapaðist. Þeir byrjuðu að spila á móti Þór og vannst sá leikur 4-1 nokkuð örugglega en það voru þeir Haukur Steinn, Eysteinn, Ríkharður og Skírnir sem skoruðu mörkin. Annar leikurinn var á móti KS/Leiftri og vannst hann 5-2 og var það nokkuð öruggt eins og fyrsti leikurinn, Eysteinn setti 2 mörk, og síðan man ég ekki hverjir skoruðu hin 3 mörkin:) síðasti leikurinn var á móti KA og var það úrslitaleikur um hvort liðið myndi vinna riðilinn en þessi leikur byrjaði vel því við komumst tvisvar yfir en í stöðunni 2-1 þá voru strákarnir orðnir þreyttir og KA gekk á lagið og skoruðu 4 mörk og unnu leikinn 5-2. Það voru Skírnir og Ríkharður sem skoruðu mörkin í þessum leik. B-liðið má vera stolt af sér eins og A-liðið því þeir voru að spila mjög flottan bolta og voru að senda vel á milli sín sem skilaði sér í mörgum mörkum:)

Þessi ferð var skemmtileg og strákarnir skemmtu sér mjög vel og var þjálfarinn ámægður með bæði liðin því þau sýndu þarna hvað þau geta en með smá heppni þá hefði þetta verið enn þá skemmtilegra;)

Strákar nú er um að gera að láta mig vita hverjir skoruðu þessi mörk sem ég man ekki hverjir skoruðu svo við fáum það á hreint:)

Kveðja Simmi

» 0 hafa sagt sína skoðun

18.06.2010 17:01:52 / 67flkk

Pollamót KSÍ

Hérna er hópurinn sem ég fer með til Siglufjarðar, en ef það er einhver sem kemst ekki þá verður hann að láta mig vita sem fyrst svo ég geti tekið einhvern annan í staðinn.

A-liðið er þannig:
Jóhann Daði, Óðinn, Hrannar, Ísak, Hólmar Sindri, Gunnar Valur, Hjörtur, Ingi Sigþór, Ragnar og Mikael.

B-liðið er þannig:
Konráð Karel, Ríkharður, Bergsteinn, Andri Snær, Aron Ingi, Eysteinn, Haukur Steinn, Víkingur, Gunnar og Skírnir

Það varð smá breyting á dagsetningunni en mótið fer fram á þriðjudaginn en ekki miðvikudaginn eins og áætlað var, annars er tímasetningin sú sama en það er að þetta byrjar kl.14:00 og strákarnir þurfa að vera mættir fyrir 13:30 á Siglufjörð.

Ef það eru einhverjir sem geta keyrt og tekið einhverja með sér þá látið mig vita hérna á síðunni eða hringja í mig svo við getum skipulagt bílamálin á æfingu á mánudaginn. Það eru 1000 krónur í bensínpening.

Kveðja Simmi
sími: 865-0804

» 4 hafa sagt sína skoðun

08.06.2010 17:40:41 / 67flkk

Pollamót KSÍ

Núna styttist í pollamót KSÍ sem er einskonar íslandsmót fyrir 6.flokk karla. Það verður haldið 23.júní á Siglufirði.

Núna á næstu dögum þá mun ég velja 20 stráka til að fara, því miður geta ekki allir farið þar sem þetta eru bara 2 lið og það er alveg hámark að vera með 10 stráka í hverju liði.

Þegar ég vel strákana þá lít ég mikið á hvernig mætingin er búin að vera á æfingarnar, ég tek tillit til hólastrákanna því þeir geta náttúrulega ekki mætt á allar æfingarnar en þeir eiga samt sjéns á að fara til Siglufjarðar.Þeir sem fara til Siglufjarðar fá að vita það ásamt því að það verður sett inn á þessa síðu.

Þannig að þeir sem fara ekki til Siglufjarðar eru ekki lélegri heldur en þeir sem fara heldur er það bara þannig að það komast ekki allir með þannig að sumir verða að vera eftir:(

Það verður þannig út þessa viku að ég vel hverjir fara en þeir fá ekki að vita það fyrr en í næstu viku.

Kveðja Simmi 

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Heimsóknir
Í dag:  4  Alls: 7465
Könnun
ætlaru að æfa fótbolta í vetur?
já að sjálfsögðu :)
1 atkvæði

nei :(
0 atkvæði

á eftir að ákveða!
0 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 1